GÖNGUFERÐIR ERLENDIS OG Á ÍSLANDI
  • Fréttir
  • Garfagnana
  • Santorini
  • Pílagrímaganga -Valdorcia
  • Róm síðustu 125 km
  • Majorka 2026
  • Blog
  • Áhugaverðar gönguferðir
    • Montserrat
    • Madeira
    • Flórens
    • PPílagrímaganga Sarzana til Lucca
    • Cisaskarðið pílagrímaganga
    • Sælkeraferð
    • Pyreneafjöll
    • Santi Bernharðsskarð
    • Majorka 2026
    • Krít
    • Lucca-Siena
    • Vín-ganga
  • Göngur á Íslandi 2020-21
    • Lýsing á Íslenskum gönguferðumi 2020-21
    • Gönguferðir á Íslandi 2021 >
      • Pílagrímaganga Bær Borgarfirði 24.-25.júlí
      • Hellisheiði 19.20.jún 2021
    • Hraunfólkið Þingvöllum
    • Kálfatjarnarkirkja-Staðarborg
    • Munkaþverá -Gásar
    • Valahnjúkar
    • Stuttar haustgöngur >
      • Búrfellsgjá 5.9. kl 14.00
  • Póstlisti
  • Hugmyndafræði, erfiðleiki
Picture

gönguferð um Montserrat og friðlönd í nágrenni Barselóna 16.-23 apríl 2025

Picture
Picture
Gönguferð um Montserrat og friðlönd í nágrenni Barselóna 16.-23. apríl 2025

Bóka hér:  https://www.verditravel.is/is/ferdir/montserrat          verð 305.900                                                   Verdi og Göngu-Hrólfur bjóða  enn og aftur upp á einstaklega skemmtilega gönguferð um þrjá  þjóð- og náttúrugarða í nágrenni Barselóna.Hver garður býr yfir sérstæðri náttúru og miklu aðdráttarafli.
Fyrst ber að nefna hið sérstæða fjallendi Montserrat sem er aðeins 60 km. frá Barselóna. Þar teygja sig turnlaga fjallatopparnir í átt til himins og minna helst á sög en Serrat þýðir skorið eða tennt fjall. Í fjöllunum er frægt klaustur og kirkjan Santa Maria de Montserrat.
Sant Llorenç del Munt friðlandið er spennandi landsvæði sem einkennist af grófu, grýttu og veðruðu landslagi með háum klettaveggjum og djúpum giljum og hellum. Þaðan er gott útsýni yfir á sérskennilegar strítur og toppa Montserrat fjallgarðsins. 
Að lokum er gengið í Montseny friðlandinu sem er á skrá UNESCO vegna einstakts lífríkis og dýralíf.
Tilhögun: Frá flugvellinum í Barselóna er haldið beint á hótelið Cel·les Abat Marcet sem er nálægt kirkjunni í Montserrat. Þar er gist þrjár nætur. Næstu daga verður gengið um þetta einstaka fjallasvæði, minjar skoðaðar og komið við í kirkjunni og klaustrinu. Einnig er hægt að skoða frábært listasafn sem þarna er. Þá liggur leiðin yfir í Sant Llorenç del Munt friðlandið þar sem dvalið  verður í bænum Terrassa. Auk þess að ganga á hæsta fjall svæðisins la Mola 1.104 m.y.s er farið í vínsmökkun og skoðunarferð í einstaka byggingu frá „modernistatímabilinu“ en þar gætir mikilla áhrifa frá Gaudi. Síðustu dagana er dvalið í þriðja friðlandinu Montseny og meðal annars gengið á næst hæsta tindinn Matagalls sem er 1697 m.y.s. og farið í skógargöngu í skemmtilegum beikiskógi. Síðasta daginn er farið snemma til  Barcelona. Þar er frjáls tími þar til farið verður með flugvallarútunni, en flugið fer ca klukkan 22:25. 
Ummæli ánægðra þátttakenda "Hef farið x2 Elska þessa ferð." "Eg fór þessa ferð 2019. Hún var í alla staði frábær"
Verð: 305.900kr. á mann í tvíbýli.
Innifalið:
Flug, gisting 7 nætur í tveggja manna herbergjum, allur flutningur, staðarleiðsögumaður 7 daga og íslensk fararstjórn, vínsmökkum á hótel Don Candido, skoðunarferð í Terrassa og heimsókn í sérstæða byggingu í móderniskum stíl. 7 morgunverðir 5 hádegisnesti og 4 kvöldmáltíðir.
Ekki innifalið tips fyrir fararstjóra,drykkir og annað persónulegt.

Dagur 1.  Flogið til Barcelona
Brottför frá Keflavík kl. Ca 15.20 og komið til Barcelona kl. 21:40, áætlað að vera á áfangastað í kringum miðnætti. Gististaðurinn Cel·les Abat Marcet er í 720 metra hæð í Montserrat fjalllendinu í einföldum uppgerðum smáíbúðum í fallegri byggingu frá 16.öld. Þaðan er einstakt útsýni til hinna sérstæðu og óvenjulegu Montserratfjall og víðar.
Dagur 2.  Santi Mikaels stígurinn
Eftir morgunverð er farið í 3 - 4 tíma þægilega göngu. Haldið er eftir stíg sem kenndur er við“Sant Miquel y les Ermites“ eða heilagn Miquel og einsetumennina. Leiðin liggur framhjá dvalarstað tveggja einsetumanna og býður upp á frábært útsýni til Miðjarðarhafsins og á einstaka fjallatoppa Montserrat. Hæst er farið í 971 metra hæð á Pla de les Tarantules, þar í lítilli byggingu er sýning sem veitir áhugaverðar upplýsingar um Montserrat svæðið. Á leiðinni til baka er gott útsýni yfir sléttuna fryrir neðan. Eftir gönguna eða jafnvel fyrir gefst góður tími til að skoða klaustrið og kirkjuna með svörtu "maddonnunni", einnig er hægt að skoða fjölbreytt listasafn klaustursins, Montserrat safnið og það vel þess virði, opið frá kl. 10:00 - 17:45. (ekki innifalið). Við fáum hádegisnesti áður en lagt er af stað, kvöldverður kl. 20.00 á hóteli Abat Cisneros, skammt frá gististaðnum.
Gengið: 4-6 km km, hækkun um 300m. Ath. stuttir kaflar geta verið brattir og lausir undir fæti. Mælt með gönguskóm. 
Dagur 3.  Toppurinn ,“Heilagur Jeroni“
Eftir morgunverð er farið í 5 - 6 tíma gönguferð (með stoppum). Leiðin liggur fyrst að „Santa Anna hermitage“eða kapellu heilagrar Önnu en hún er í 890 metra hæð. Síðan er haldið á Sant Jeroni sem er 1149 m.y.s og hæsti hluti Montserrat fjalllendisins. Þessi tindur er aðeins nokkrir fermetrar að ummáli og af honum er frábært útsýni til allra átta. Á bakaleiðinni er farið framhjá Sant Benet hermitage eða kapellunni. Kvöldverður á hótel Abat Cisneros. Kl. 20.00.
Gengið; 9.5 km. hækkun 670m. Ath.í byrjun og lok göngunnar eru fjölmargar tröppur.
Dagur 4.  Gamla þjóðleiðin til Manresa
Eftir morgunverð er farangurinn fluttur á Hotel Don Cándido í bænum Terrassa, en hópnum er ekið til Rellinars sem er í Sant Llorenç del Munt náttúrugarðinum. Markmið dagsins er að heimsækja Obac fjallgarðinn sem er mikilvægur hluti Sant Llorenç del Munt garðsins. Haldið er eftir stígnum Camí ral de Manresa til Terrassa, gömlu þjóðleiðinni sem farin var gegnum aldirnar fram að komu bílsins. Haldið er eftir fjallshryggjunum og við blasir frábært útsýni til Pyreneafjallanna, yfir á hinn tindótta Montserrat fjallgarð og fleiri fjallasvæði. Göngunni lýkur í útjaðri Terrassa, en þaðan tökum við strætó á hótelið. Um fimmleitið verður svo vínsmökkun á hótelinu. Þar sem við brögðum á víni frá suður Katalóníu og smökkum jafn vel pylsur og ost frá svæðinu. Kvöldverður kl.20.00 á veitingastað í nágrenninu.Ekki innifalið)
13.7 km hækkun, ca 550m. https://www.eurostarshotels.co.uk/eurostars-don candido.html
Dagur 5.  Fjallið „Mola“ og hádegisverður á toppnum
Eftir morgunmat er ekið stuttan spöl inn í Sant Llorenç del Munt garðinn og nú er markið sett á hæsta fjallið, La Mola. Gangan hefst í Estenalles skarðinu sem er í 873 metra hæð og henni lýkur í nágrenni við Matadepera sem er í 668 metra hæð. Haldið er í suður eftir fjallshrygg sem nefnist Pagès og stefnt á La Mola 1103 m.y.s. Á toppnum er falleg klausturkirkja sem er frá XII öld og þar er einstakt útsýni enda einn besti útsýnisstaður Katalóníu. Á vorin má sjá snæviskrýdd Pyreneafjöllin og jafnvel Canigou sem er þekktur tindur í Frakklandi. Eftir að hafa dvalið góða stund er haldið niður aðra leið. Þar snæðum við hádegisverð í litlu þorpi Can Pobla ( ekki innifalið í verði). Eftir matinn verður ekið heim á hótel. Gengið: 10km – hækkun550 m Þangað komin heimsækjum við mjög sérstæða modernistabyggingu sem er í anda Gaudi (Masia Freixa) og fáum þar rúmlega klukkutíma leiðsögn. Um kvöldið verður tapasmáltíð í Terrassa. (ekki innifalið í verði).
Gengið 10km, hækkun: 550m. Kvöldverður á hótelinu. 550m.

Dagur 6. Fjallið „Matagalls“ 
Eftir morgunmat er farangurinn fluttur á síðasta hótelið Sant Marçal. Hópnum er ekið upp í Coll Formic skarðið sem er í 1144 metra hæð. Þaðan er haldið á toppinn á Matagalls sem er 1696 metra hár og sá næst hæsti á svæðinu. Af fjallinu er mjög fallegt útsýni yfir þorpin og fjöllinn í næsta nágrenni. Það er líka sérlega falleg sýn til Pyreneafjallanna en þessi tindur er nær þeim en aðrir sem við höfum klifið. Síðan er haldið í austur og niður í Sant Marçal skarðið sem er í 1106 metra hæð. Á leiðinni komum við á fallega sléttu Pregon pass sem er í 1532 metra hæð og göngum gegnum sérstæðan beikiskóg. Gisting: Hotel Sant Marçal sem er inni í miðjum skógi í fyrrum miðalda klaustri. http://santmarcalmontseny.com/ Sant Marcal Kvöldverður á hótelinu.
Gengið: 8 km hækkun 610m.  
Dagur 7.  Skógarganga „La Tordera“
La Tordera er nafnið á stærstu ánni í Katalóníu en upptök hennar eru rétt hjá Hotel Sant Marçal, við brunninn Font Blanca . Við byrjum gönguna við hótelið og höldum með norður hlíð dalsins sem áin Tordela hefur grafið í gegnum aldirnar. Í fyrstu er gengið í gegnum einstaklega fallegan beikiskóg en þegar komið er yfir í suður hlíð fjallsins verður Miðjarðarhafseik æ meira áberandi. Við förum framhjá bænum Can Font, sem er í 830m hæð, ann gott dæmi um þá einangruðu byggð sem finna má í þessum hluta Monseny. Áður en farið er yfir Tordera ána þurfum við að fara fyrir klettasnösina Bovilà og fylgja örlítið varasömum slóða. Handan árinnar fara beikilundir aftur að verða áberandi. Við höldum síðan eftir breiðum stíg að að Blanca uppsprettunni sem er rétt við hótelið. Kvöldverður á hótelinu.
Gengið 16.4 km hækkun 596 m.
Dagur 8.  Heimferðardagur
Eftir morgunmat er farið með rútu á Saint Celoni brautarstöðina og þaðan með lest til Barcelona. Eftir að farangurinn hefur verið settur í geymslu skammt frá lestarstöðinni getur hver og einn varið nokkrum klukkutímum í borginni. (ath, geymslugjald í farangursgeymslu og flugrútan ekki innifalin í verði (ca 6 EUR hvort um sig)).
Flogið um kvöldið með Play í beinu flugi. 
    
Erfiðleikastig 2 fjöll.                                                                                                                                                                                                                                        
Nánari upplýsingar um ferðir Göngu Hrólfs             https://www.verditravel.is/is/    https://gonguhrolfur.weebly.com/




Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Fréttir
  • Garfagnana
  • Santorini
  • Pílagrímaganga -Valdorcia
  • Róm síðustu 125 km
  • Majorka 2026
  • Blog
  • Áhugaverðar gönguferðir
    • Montserrat
    • Madeira
    • Flórens
    • PPílagrímaganga Sarzana til Lucca
    • Cisaskarðið pílagrímaganga
    • Sælkeraferð
    • Pyreneafjöll
    • Santi Bernharðsskarð
    • Majorka 2026
    • Krít
    • Lucca-Siena
    • Vín-ganga
  • Göngur á Íslandi 2020-21
    • Lýsing á Íslenskum gönguferðumi 2020-21
    • Gönguferðir á Íslandi 2021 >
      • Pílagrímaganga Bær Borgarfirði 24.-25.júlí
      • Hellisheiði 19.20.jún 2021
    • Hraunfólkið Þingvöllum
    • Kálfatjarnarkirkja-Staðarborg
    • Munkaþverá -Gásar
    • Valahnjúkar
    • Stuttar haustgöngur >
      • Búrfellsgjá 5.9. kl 14.00
  • Póstlisti
  • Hugmyndafræði, erfiðleiki